Ísland laut í lægra haldi gegn Slóvakíu í Ólafssal í kvöld í þriðja leik sínum í undankeppni EuroBasket 2025. Íslenska liðið enn án sigurs í keppninni eftir fyrstu þrjá leikina á meðan að Slóvakía hefur unnið tvo og tapað einum.
Hérna er meira um leikinn
Karfan spjallaði við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur leikmann Íslands eftir leik í Ólafssal. Kolbrún var að leika sinn fyrsta leik fyrir A landslið Íslands í kvöld og skilaði 10 stigum og 3 fráköstum á rúmum 24 mínútum spiluðum.