Mikið hefur verið rætt og ritað um svipleika á milli þeirra Kobe Bryant og Michael Jordan. Flestir eru á því að MJ hafi vinninginn enda goðsögn sem sló nánast öll þau met sem hægt var að slá á ferli sínum ásamt því að raka inn 6 titlum til Chicago. Kobe fór nýlega yfir 30 þúsund stiga múrinn og lítið bendir til þess að hann sé hættur í boltanum. Auk þess hefur hann einnig hlaðið á sig 5 titlum, einum minna en Michael.
Það er einmitt málið, Kobe virðist alltaf vera “einum á eftir” MJ. En með þessu myndbandi hér að neðan ættu flestir að sjá hversu sláandi líkir leikmenn Kobe og MJ eru/voru. Hugsanlega hefur Kobe horft á nokkur myndbönd af MJ og hugsað með sér, til hvers að finna upp hjólið að nýju, ég geri þetta bara eins og hann.