spot_img
HomeFréttirKobe bestur í Stjörnuleik NBA

Kobe bestur í Stjörnuleik NBA

10:04 

{mosimage}

 

 

Stjörnuleikur NBA deildarinnar fór fram í nótt þar sem úrvalslið austur- og vesturstrandarinnar mættust í Las Vegas í Bandaríkjunum. Skemmst er frá því að segja að lið vesturstrandarinnar hafði góðan sigur á austurströndinni, 153-132, og var Kobe Bryant valinn maður leiksins en hann gerði 31 stig, gaf 6 stoðsendingar, stal 6 boltum og tók 5 fráköst. Þetta var í annað sinn á ferli Bryant sem hann er valinn besti leikmaður stjörnuleiksins. Hjá austurströndinni var LeBron James atkvæðamestur með 28 stig, 6 stoðsendingar og 6 fráköst.

 

Um Stjörnuhelgina er jafnan mikið að gerast og lögðu heimsfræg nöfn leið sína til Partýborgar Bandaríkjanna um helgina. Venju samkvæmt fóru þriggja stiga keppnin og troðslukeppnin fram um helgina og var það Gerald Green leikmaður Boston Celtics sem fór með sigur af hólmi í troðslukeppninni og Jason Kapono leikmaður Miami Heat hafði sigur í þriggja stiga keppninni.

 

Mynd: AP

Fréttir
- Auglýsing -