spot_img
HomeFréttirKKDÍ leitar aðstoðar lögfræðinga

KKDÍ leitar aðstoðar lögfræðinga

11:05 

{mosimage}

 

 

Körfuknattleiksdómarafélag Íslands hefur ákveðið að leita sér aðstoðar lögfræðinga til að meta hvort ástæða sé til að kæra ummæli Vals Ingimundarsonar til dómstóla. Ummælin féllu eftir leik í Borgarnesi, í gærkvöldi, þann 20. mars í viðtali við Arnar Björnsson á sjónvarpsstöðinni Sýn. Dómarar telja ummælin meiðyrði og rógburð.

 

Skallagrímur féll í gær út úr úrslitakeppninni í Iceland Express deild karla í körfuknattleik eftir 81-97 ósigur gegn Grindavík í Fjósinu í Borgarnesi.

 

Valur sagði meðal annars við SÝN í gærkvöldi að hann ætlaði ekki að vera að ,,væla” út í dómarana en að honum hafi fundist það ljóst að bæði í fyrsta leiknum, leiknum í gær og í bikarkeppninni að Skallagrímur ætti ekki að ná langt í vetur og vildi ekki fara nánar út í kenningar sínar í viðtalinu við Arnar Björnsson á SÝN í gærkvöldi en viðtalið var birt að hluta til á fréttasíðunni www.visir.is í gærkvöldi eftir leik.

 

Valur sagði einnig: ,,Ég er ekki alsvekktur með spilamennsku okkar í kvöld. Við byrjuðum illa en náðum að komast inn í leikinn aftur en mér fannst við ekki vera að fá sömu hlutina og Grindvíkingarnir undir körfunni. Flake var hvað eftir annað barinn í spað í teignum, en svo var flautað á allt á hinum enda vallarins.

Þessi bransi snýst auðvitað um það að komast langt í úrslitakeppninni en ég er stoltur af þessu liði og þetta er búinn að vera frábær vetur. Það er leiðinlegt fólksins vegna að fara ekki lengra í keppninni. Það er það sama með öll landsbyggðarliðin – það hallar á okkur," sagði Valur.

 

Kristinn Óskarsson formaður KKDÍ og dómari frá Keflavík kvaðst í samtali við Víkurfréttir ekki ætla að tjá sig opinberlega um málið heldur verður það á bandi lögfræðinga að meta hvort ástæða sé til að kæra ummæli Vals.

 

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -