KFG fékk KV í heimsókn í Umhyggjuhöllina fyrr í dag í undanúrslitum í annarri deild karla, 75-77.
KV byrjaði leikinn að krafti og voru yfir allan fyrri hálfleikinn. KFG náði að komast betur inn í leikinn og staðan í hálfleik var 38-45. Í seinni hálfleik komu KFG sterkir til baka og unnu upp forskot KV manna. Síðasti fjórðungurinn var æsispennandi og þegar 17 sekúndur voru eftir var staðan 75-75, Náðu KV menn að setja niður síðustu körfuna og enduðu leikar 75-77.
Atkvæðahæstur KV manna var var Eyjólfur með 23 stig og hjá KFG var Ásmundur Múli með 30 stig.
Það er því ljóst að KV mun heimsækja Vestra á Ísafirði þann 12. apríl í úrslitum.
Umfjöllun, myndir / Sævar Jónasson