Njarðvíkingar sigruðu KR í kvöld á dramatískan hátt líkt og kannski flestir vita. Haukur Helgi Pálsson setti niður huggulegan tvist með Brynjar Björnsson í buxnastrengnum og tryggði Njarðvík sigur. Fyrir ca ári síðan áttust sömu lið við í leik númer tvö í undanúrslitum í Njarðvík. Þá var það Stefan Bonneau sem sá um að sökkva þeim KR-ingum á loka sekúndum leiksins. Við höfum klippt saman myndband sem við höfum fengið send frá stuðningsmönnum UMFN þar sem sýnir að þessar lokakörfur leikjana eru alls ekki ólíkar og nánast hreinlega alveg eins….nema önnur gaf þrjú stig og hin tvö.