Þrátt fyrir að vera í Grikklandi og í um 20 gráðum betur en hér á frónni þá fylgist Hörður Axel Vilhjálmsson vel með gangi mála í Dominosdeildinni. Hörður hnoðaði saman í eina spá fyrir leiki kvöldsins.
Keflavík – Tindastóll
Ég held að Keflavík taki þennan og setji strax spennu og pressu inn í einvígið. Til þess að það gerist þurfa þeir að spila mjög villt og setja mikla pressu á Tindastól um allan völl. Taka ótímabær skot reyna hleypa leiknum eins mikið upp og þeir geta, þar sé ég möguleika Keflavík á móti besta liði landsins um þessar mundir. Ég held það gangi upp í kvöld.
KR – Grindavík
Því miður held ég að það verði aldrei leikur úr þessu og KR taki þennan frekar auðveldlega. Brynjar mun mjög líklega skjóta sig í gang í kvöld ef ég þekki hann rétt og koma sér í playoff ham. Grindavík er búið að spila langt undir pari í allan vetur, þarf eitthvað kraftaverk að gerast svo það breytist. Það gerist varla með hendur í vösum trúi ég. Ég er mjög lélegur að spá í tölum þannig ég læt það eiga sig.
Mynd: Hörður með Dirk Nowitski á blokkinni síðastliðið sumar.