Keflavík hefur samið við Ty-Shon Alexander um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Bónus deild karla.
Ty er 26 ára 191 cm bakvörður sem kemur til Keflavíkur frá Korovois í Grikklandi, en hann hefur einnig leikið sem atvinnumaður fyrir lið á Ítalíu og í Bandaríkjunum. Í Bandaríkjunum lék hann um tíma fyrir Phoenix Suns í NBA deildinni tímabilið 2020-21, en með þeim lék hann meðal annars í úrslitakeppni deildarinnar.