Keflavík hefur samið við Remu Raitanen fyrir yfirstandandi átök í Bónus deild karla. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.
Remu er 27 ára 206 cm finnskur framherji sem kemur til liðsins frá Prievidza í Slóvakíu, en ásamt þeim hefur hann leikið fyrir félög á Spáni og heimalandinu Finnlandi. Í finnsku deildinni var hann valinn leikmaður ársins 2022. Þá hefur hann verið hluti af finnska landsliðinu og leikið 40 leiki fyrir þá.