Keflavík hafði betur gegn KR í kvöld í lokaleik 5. umferðar Bónus deildar karla, 94-88.
Eftir leikinn eru liðin jöfn að stigum í 6. til 10. sæti deildarinnar með tvo sigra og þrjú töp.
Leikur kvöldsins var jafn lengi vel framan af og skiptust liðin í nokkur skipti á forystunni í fyrri hálfleiknum. Þegar í seinni hálfleikinn var komið náðu heimamenn í Keflavík þó að hanga á forystu sinni, sem mest fór í 18 stig í kringum leikhlutaskipti þess þriðja og fjórða. Gestirnir úr KR gera þó ágætlega að koma til baka á lokamínútunum, en ná þó ekki að jafna leikinn. Niðurstaðan að lokum sex stiga sigur Keflavíkur.
Atkvæðamestir heimamanna í leiknum voru Jaka Brodnik með 19 stig, 9 fráköst og Marek Dolezaj með 14 stig og 10 fráköst.
Fyrir gestina úr Vesturbær var það Vlatko Granic sem dró vagninn með 17 stigum og 14 fráköstum. Honum næstur var Nimrod Hilliard með 20 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.