Oddaleikur Keflavíkur og Skallagríms í undanúrslitum Dominos deildar kvenna fer fram í kvöld. Í honum mun ráðast hvort liðið það verður sem að fær það verkefni að leika gegn meisturum síðustu þriggja ára í Snæfelli til úrslita. Við fengum þjálfara verðandi nýliða deildarinnar Breiðabliks, Hildi Sigurðardóttur, til þess að rýna aðeins í viðureignina. En Hildur lék einmitt með Snæfelli þegar að þær urðu meistarar fyrir tveimur árum.
Hvernig finnst þér einvígi Skallagríms og Keflavíkur hafa spilast?
Skemmtileg barátta tveggja góðra liða. Það kom á óvart að sumir skyldu spá að Keflavík myndi rúlla yfir Skallagrím sem hefur á að skipa sterka og reynda leikmenn.
Hvað hefur komið þér mest á óvart?
Það kemur á óvart hversu mikla orku leikmenn Skallagríms og þjálfarar hafa varið í að gagnrýna dómgæslu í staðinn fyrir að líta á eigin frammistöðu. Þær hafa þó stigið upp og lagað þessa þætti og það á eftir að skila þeim góðum leik.
Hvað þarf Skallagrímur að gera til þess að eiga möguleika á að klára þetta?
Lið Skallagríms þarf að einbeita sér að eigin leik en ekki þáttum sem það hefur litla stjórn á. Í undanförnum leikjum hefur það sýnt sig að ef einbeiting og orka fer í leikinn sjálfan skilar það liðinu góðum úrslitum.
Hvað þarf Keflavík að gera til þess að eiga möguleika á að klára þetta?
Keflavík þarf að halda áfram góðum varnarleik og fá framlag frá sem flestum.
Hvernig fer leikurinn í kvöld
Keflavík vinnur nauman sigur eftir harðan leik. Liðsheildin mun skipta sköpum.