Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur hafa samið við Jasmine Dickey um að leika með liðinu í Bónusdeild kvenna í vetur.
Jasmine er 24 ára 175 cm bandarískur bakvörður/framherji sem kemur til Keflavíkur frá meistaraliði Southside Flyers í Ástralíu. Ásamt Ástralíu hefur hún einnig leikið á Ítalíu og í WNBA deildinni í heimalandinu síðan hún kláraði háskólaboltann með Delaware Fightin Blue Hens 2022, en hún var valin inn í WNBA deildina með 30. valrétti nýliðavals árið 2022 af Dallas Wings og hefur leikið 34 leiki í deildinni.