Keflavík lagði Hauka í spennuleik í Blue höllinni

Keflavík lagði Hauka í Blue höllinni í kvöld í 5. umferð Subway deildar karla, 89-86. Eftir leikinn er Keflavík í 3.-8. sæti deildarinnar með 3 sigra og tvö töp, en Haukar í 9.-10. sætinu með 2 sigra og 3 töp.

Þrátt fyrir að Keflavík hafi leitt leikinn frá upphafsmínútum leiksins náðu Haukar að koma sér í ágætisstöðu til að vinna undir lokin, en þökk sé nokkrum stórum körfum frá Sigurði Péturssyni náðu heimamenn að sigla sigrinum í höfn.

Atkvæðamestir fyrir Keflavík í leiknum voru Sigurður Pétursson með 15 stig, 7 fráköst, 5 stolna bolta og Marek Dolezaj með 14 stig og 9 fráköst.

Fyrir Hauka var það Jalen Moore sem dró vagninn með 29 stigum og 11 fráköstum. Við það bætti Oosku Heinonen 20 stigum.

Tölfræði leiks