Minnibolti 11 ára stúlkna í Keflavík tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á um helgina eftir hreinan úrslitaleik við Þór frá Þorlákshöfn. Lokatölur voru 23-16
Úrslitaleikurinn fór rólega af stað og greinilega nokkuð stress hjá báðum liðum, en það voru Þórsarar sem skoruðu fyrstu stigin eftir víti og jafnt var nánast á öllum tölum í fyrri hálfleik og staðan 8-8 í hálfleik. Í síðari hálfleik mættu Keflavíkurstúlkur hrikalega grimmar til leiks og sigu fram úr hægt og rólega og unnu að lokum nokkuð þægilegan sigur.
Þetta var klárlega mikill liðssigur þar sem vörnin var þeirra helsti styrkur og efniviðurinn heldur áfram að vaxa í Keflavíkinni. Þórs liðið einnig gríðarlega sterkt en þurftu að játa sig sigraðar í þessum leik. Liðin tvö mættust 5 sinnum í vetur og þar vann Þór fyrstu 3 leikina en Keflavík síðustu 2 þannig að þetta eru klárlega 2 sterkustu liðin í þessum aldursflokki. Njarðvík blandaði sér einnig í lokabaráttuna og enduðu í 3ja sæti. Fróðlegt var að sjá hversu miklar framfarir voru hjá í raun öllum liðum frá upphafi móts til loka og er það gleðiefni fyrir körfuknattleikinn. Karfan.is óskar íslandsmeisturum til hamingju og öllum öðrum liðum einnig fyrir frábæra frammistöðu í vetur.