Keflavíkurstúlkur halda áfram að sópa að sér titlum en 7. flokkur kvenna urðu Íslandsmeistarar í körfubolta um helgina eftir sannfærandi sigur á Ármanni 43-11. www.vf.is greinir frá.
?Ekki er hægt að segja að keppnin hafi verið spennandi fyrir Keflavík en flestir leikir vetrarins hafa endað með svipuðum lokatölum. Enda urðu stelpurnar einnig í 2.sæti á Íslandsmóti 8. flokks þar sem þær kepptu við vinkonur og samherja sína árinu eldri fyrir nokkrum helgum.?Stúlkurnar fögnuðu vel í lokin enda vel að sigrinum komnar.??Katla Rún Garðarsdóttir og Andrea Dögg Einarsdóttir fyrirliðar Keflavíkur tóku við íslandsmeistaratitlinum.
Til hamingju Keflavíkurstúlkur
Mynd/ GÓ