spot_img
HomeFréttirKeflavík endurnýjar samninga

Keflavík endurnýjar samninga

 

Samkvæmt heimasíðu Keflvíkinga hafa þeir suður með sjó endurnýjað samninga við þrjá leikmenn liðsins.  Á heimasíðu Keflavíkur segir að þeir Magnús Már Traustason, Andrés Kristleifsson og Reggie Dupree hafi allir endurnýjað samninga sína til tveggja ára.  Allir þessir leikmenn voru  stórir póstar í liðinu á síðasta ári og þeir Magnús og Reggie báðir að öllu jöfnu í byrjunarliði liðsins og því afar góðar fréttir fyrir þá Keflvíkinga.

Fréttir
- Auglýsing -