spot_img
HomeFréttirKeflavík B mætir Njarðvík í bikarnum

Keflavík B mætir Njarðvík í bikarnum

 Keflavík B og ÍG mættust í kvöld í Toyotahöllinni í Powerade bikarnum. Leikur þessi var umspil um leik gegn Njarðvík í 32ja liða úrslitum. Leikurinn var nokkuð jafn framan af eða þangað til í öðrum leikhluta þá náðu heimamenn 10 stiga forystu og leiddu með þeim mun í hálfleik 38:28.  Keflvíkingar héldu áfram að þjarma að Grindvíkingum og náðu mest 16 stiga forskoti. En gestirnir voru ekki af baki dottnir og komu sér aftur inn í leikinn í fjórða leikhluta. Undir lok leiksins áttu gestirnir möguleika á að jafna en Jón Ágúst Eyjólfsson klikkaði á síðasta skoti leiksins og gömlu kepmurnar úr Keflavík hrósuðu sigri.
 
Hjá Keflavík voru mættir til leiks Falur Harðarson, Sverrir Þór Sverrisson, Guðjón Skúlason , Albert Óskarsson svo einhverjir séu nefndir.  Það var Gunnar Einarsson hinsvegar sem var þeirra stigahæstur með 16 stig í þetta skiptið. Stráksi ennþá í formi svona að einhverju leyti.   Hjá ÍG var það gamli markvörðurinn Helgi Már Helgason sem var þeirra atkvæðamestur með 21 stig. 
 
 
Mynd: Falur, Albert og Guðjón lítt frægir fyrir að troða hér á árum áður. En þarna sjást þeir troða poppi í andlitið á sér eins og engin sé morgundagurinn.
Fréttir
- Auglýsing -