Keflavík mun fara áfram í 8 liða úrslit VÍS bikarkeppni kvenna þar sem að ungmennalið sama félags hefur gefið leik þeirra í 16 liða úrslitunum. Tilkynnir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í kvöld.
Leikur liðanna átti að fara fram kl. 14:00 á morgun, en ljóst er að ekkert verður af honum og verður aðallið þeirra því í 8 liða pottinum þegar dregið verður án þess að þurfa leika í 16 liða úrslitunum.