Kawhi Leonard er ekki hinn dæmigerði NBA leikmaður. Hann tjáir sig ekki á Twitter, Facebook eða Instagram. Hann gengur ekki um í dýrum fötum og lætur almennt lítið fara fyrir sér, þrátt fyrir að vera tilnefndur verðmætasti leikmaður úrslitanna 2014.
Hann samdi nýverið við San Antonio Spurs um 90 milljónir dollara fyrir næstu 5 ár í Spurs búning. Það þýðir ekki að þessi hlédrægi meistari kasti frá sér krónunni heldur keyrir hann um á gömlum Chevy Tahoe, árgerð 1997, samkvæmt viðtali við hann í Sports Illustrated.
Hvers vegna? Jú, hann gengur enn og búið er að greiða fyrir hann. Til hvers að flækja hlutina?
Þar að auki notar Leonard alltaf matarmiða (e. coupons) frá Wingstop til að fá fría kjúklingavængi og fylltist mikilli örvæntingu eitt skiptið þegar hann týndi miðunum sínum. Wingstop splæstu að sjálfsögðu í nýja miða fyrir fyrir þennan magnaða viðskiptavin sinn.