Kári Jónsson og Girona máttu þola tap í kvöld fyrir HLA Alicante í Leb Oro deildinni á Spáni, 74-62. Girona eru eftir leikinn í 8. sæti B hluta deildarinnar með fimm sigra og sjö töp það sem af er tímabili.
Á um 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Kári 5 stigum, 4 fráköstum, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Næsti leikur Girona er komandi laugardag 7. febrúar gegn Coviran Granada.