Valur lagði Hauka í kvöld í lokaleik 4. umferðar Subway deildar karla. Eftir leikinn eru liðin jöfn að stigum í deildinni, hvort um sig með þrjá sigra og eitt tap það sem af er tímabili.
Karfan spjallaði við Kára Jónsson leikmann Vals eftir leik í Ólafssal. Kári átti frábæran leik gegn sínum gömlu félögum, skilaði 28 stigum, 9 fráköstum og 7 stoðsendingum á rúmum 33 mínútum spiluðum.