Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari Vals var að vonum svekktur með nauman ósigur sinna kvenna gegn toppliði Keflavíkur í kvöld. Valskonur áttu myndarlega 17-0 rispu sem þær náðu ekki að nýta sér til að klára leikinn. Ágúst talaði um eftir leikinn að í kvöld hefði farið fram ekta góður kvennakörfuboltaleikur í Vodafonehöllinni.