Hjalti Vilhjálmsson þjálfari Fjölnis var að vonum súr í broti eftir stóran skell Fjölnis gegn Grindavík í kvöld. Karfan TV ræddi við Hjalta eftir leik og sagði hann m.a. að sínir menn þyrftu að hafa trú á því að þeir gætu unnið Grindavík en liðin mætast aftur á sunnudag í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins.