Teitur Örlygsson sýndi gamalkunna takta í Ljónagryfjunni í gærkvöldi þegar hann varð þriggja stiga meistari í ágóðaleik Njarðvíkinga til styrktar Líknarsjóði Njarðvíkurkirkna. Fyrir þriggja stiga keppnina lét Teitur dýr orð falla, að hann hefði aldrei tapað þriggja stiga keppni. Pressan var því nokkur að halda sigurgöngunni óslitinni og það gerði einmitt kappinn. Skaut öllum öðrum keppendum ref fyrir rass.
Það vantaði ekki bomburnar í keppnina en Teitur beit þá alla af sér og fögnuðu áhorfendur þessari hetju sinni gríðarlega þegar sigurinn var í húsi. Karfan TV náði að sjálfsögðu sigurstundinni og er sjón sögu ríkari – hægt er að horfa á myndbandið í HD upplauns á Youtube: