Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Grindavíkur var að vonum hæstánægður með stórsigur Grindavíkur í Dalhúsum í kvöld. Grindvíkingar verða á toppi Domino´s deildarinnar yfir jólin ásam Þór Þorlákshöfn. Karfan TV ræddi við Sverri eftir leik en Grindavík mætir Fjölni aftur í bikarnum á sunnudag í 16 liða úrslitum og sagði Sverrir að nú þyrftu menn að núllstilla sig fyrir bikarinn.