Pálína Gunnlaugsdóttir hefur marga fjöruna sopið í boltanum og í kvöld þurfti hún að lúta í parket gegn sterku liði Snæfell og gerði hún það með tign. Pálína hrósaði liði Snæfell fyrir frábæran leik og sagði sitt lið hafa tapað gegn sterkum og verðugum andstæðingum. Aðspurð hvort þetta væru mögulega endalok hennar ferils var hún hikandi. Hún vildi enda hann á betri hátt en ætlaði að skoða þetta allt saman.