Sverrir Þór Sverrisson virðist vera gullkálfur þegar kemur að Íslandsmeistartitlum. Í fyrra fagnaði hann þeim stóra með kvennaliði UMFN og í ár hampaði sama titli með karla liði UMFG. Sverrir var að vonum sáttur með kvöldið og játaði að það væri gríðarlega erfitt að vera á hliðarlínunni og geta ekki hreinlega tekið þátt í leiknum.