JR Smith skotbakvörður þeirra NY Knicks er meiddur á hné og mun verða frá næstu 3 til 4 mánuði eftir að hafa farið í aðgerð. Meiðsli þessi höfðu verið að grassera lengi smátt og smátt og það kom að því að Knicks vildu senda Smith í aðgerð. Smith ætti hinsvegar að vera tilbúin seint í október eða byrjun nóvember sem þýðir að hann verði tilbúin um það bil sem að deildinn hefst.
Smith sem sagði sig lausan frá Knicks eftir tímabilið hefur nýverið skrifað undir nýjan og nokkuð þéttari samning við Knicks sem færa honum stærri tékka inn um lúguna mánaðarlega. Smith var síðastliðið tímabil valin besti 6. leikmaður deildarinnar en hann er þriðji leikmaður Knicks til að hljóta þessa nafnbót. John Starks og Anthony Mason höfðu áður hlotið þessa viðurkenningu