Jón Sverrisson snéri aftur til Fjölnis í dag þegar hann samdi við félagið um að leika með því næsta vetur. Þetta kom frá á Facebook síðu kkd. Fjölnis.
Jón lék með Stjörnunni síðasta vetur en lék aðeins tvo leiki með félaginu þar sem hann var mikið frá vegna meiðsla. Jón mun veita Fjölni mikinn liðstyrk í baráttunni um að komast aftur upp í úrvalsdeild.
Mynd: Jón og Hjalti Vilhjálmsson, þjálfari Fjölnis handsala samninginn í dag. (Facebook síða Fjölnis)