Jón Ólafur Jónsson leikmaður Snæfells var í dag útnefndur besti leikmaður fyrri umferðarinnar í Domino´s deild karla. Þá var Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórs úr Þorlákshöfn valinn besti þjálfari fyrri umferðarinnar. Kjörið var kunngjört í húsnæði ÍSÍ í Laugardal í dag.
Úrvalslið Domino´s deildar karla, fyrri hluti 2012-2013 (umferðir 1-11)
Justin Shouse – Stjarnan
Samuel Zeglinski – Grindavík
Darrel Lewis – Keflavík
Marvin Valdimarsson – Stjarnan
Jón Ólafur Jónsson – Snæfell
Dugnaðarforkurinn: Sigmar Egilsson – Skallagrímur
Besti þjálfarinn: Benedikt Guðmundsson – Þór Þorlákshöfn
Þá var Sigmundur Már Herbertsson valinn besti dómarinn í fyrri hluta Domino´s deildar karla og kvenna.
Jón Ólafur er vel að útnefningunni kominn með 22,1 stig, 9,1 frákast og 2,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Jóni hefur verið heit höndin í fyrri hluta mótsins með 60,8% þriggja stiga nýtingu sem á góðri íslensku er rosalegt!
Mynd/ [email protected] – Á myndina vantar Darrel Lewis leikmann Keflavíkur.