spot_img
HomeFréttirJón Halldór: Hroki í mínu liði tapaði leiknum

Jón Halldór: Hroki í mínu liði tapaði leiknum

11:45 

{mosimage}

 

 

Þau óvæntu úrslit áttu sér stað í Iceland Express deild kvenna í gærkvöldi að Keflavíkurkonur sem eru í 2. sæti deildarinnar töpuðu gegn botnliði Hamars 86-82. Fyrir leikinn hefði ósigur Hamars þýtt fall í 2. deild svo þær voru á síðasta séns á heimavelli í gær. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkurkvenna, sagði í samtali við Víkurfréttir að hann myndi ekki láta hafa það eftir sér í fjölmiðlum hvað hann hefði sagt við sína leikmenn inni í klefa að leik loknum, klefaræðan væri óbirtingarhæf.

 

Jón Halldór var ekki ánægður með dómara leiksins en sagði enga utanaðkomandi þætti hafa átt sök á tapinu. ,,Dómararnir töpuðu ekki þessum leik fyrir okkur. Það hvarflar ekki að mér að kenna þeim um þetta tap. Ég var ekki ánægður með dómgæsluna en hún tapaði ekki þessum leik heldur hroki í mínu liðið. Stelpurnar mættu í þennan leik haldandi það að þær séu betri en allt og allir. Ef þú berð ekki virðingu fyrir andstæðingi þínum þá tapar þú, svo einfalt er það,” sagði Jón í samtali við Víkurfréttir en hann var enn í töluverðu uppnámi að eign sögn eftir tapleikinn í Hveragerði í gærkvöldi.

 

,,Hamar átti þennan sigur skilinn í gær, þær voru uppi við vegg og þá gerast oft hlutirnir. Að sama skapi mættum við ekki klárar til leiks og ég hef aldrei orðið vitni að öðrum eins aumingjahætti og í gær,” sagði Jón. Inntur eftir því hvað hann hefði sagt við sína leikmenn inni í klefa eftir leikinn svaraði Jón: ,,Klefaræðan er óbirtingarhæf,” og má svo skilja að hann hafi lesið sínum leikmönnum ærlegan pistilinn.

 

,,Þetta er einfalt mál, það eru aðeins tvær leiðir í boði fyrir okkur. Ein er að leggjast í volæði, grenja og kenna ytri aðilum eða öflum um tapið en hin leiðin er að bíta í skjaldarrendur og taka sig saman í andlitinu, bæði ég og leikmenn. Við þurfum að spyrja okkur sjálf að því hvað við viljum fá út úr því að vera í körfubolta. Ef við förum þessa seinni leið þá getur allt gerst,” sagði Jón.

 

Tapið liggur enn þungt á Jóni en hann hefur verið viðriðinn körfuknattleik síðan hann var sex ára gamall. ,,Leikurinn í gær toppaði allt sem ég hef séð. Ég stóð bara þarna og klóraði mér í hausnum. Ef við spilum eins og við gerðum í gær í síðustu umferðinni gegn Haukum þá töpum við með 50 stigum gegn þeim. Vonbrigðin við þennan leik í gær eru meiri í dag en í gær en maður kemst yfir þetta, það er kosturinn við íþróttir,” sagði Jón.

 

Síðast umferðin í Iceland Express deild kvenna fer fram miðvikudaginn 14. mars og þá taka Keflavíkurkonur á móti Haukum í Sláturhúsinu. Sigur verður að vinnast þar hjá Keflavík ætli þær sér að vera öruggar með 2. sætið í deildinni og þar af leiðandi heimavallarréttindin í úrslitakeppninni gegn Grindavík í fyrstu umferð.

 

Frétt og mynd af www.vf.is

 

Mynd: Jón Halldór og Agnar Mar, þjálfarar Keflavíkurliðsins, ræða við sína leikmenn í Bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll.  

Fréttir
- Auglýsing -