Njarðvík lagði granna sína úr Keflavík í kvöld í Subway deild kvenna, 75-65. Eftir leikinn er Njarðvík í efsta sæti deildarinnar með 26 stig á meðan að Keflavík er í 5. sætinu með 14 stig.
Karfan spjallaði við Jón Halldór Eðvaldsson þjálfara Keflavíkur eftir leik í Ljónagryfjunni.