Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners máttu þola tap í dag fyrir Mitteldeutscher í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 76-81. Eftir leikinn eru Skyliners í 11. sæti deildarinnar með 11 sigra og 17 töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 24 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 12 stigum, frákasti og 3 stoðsendingum. Það er stutt á milli leikja þessa dagana hjá Skyliners, sem næst eiga leik þann 27. apríl gegn sterku liði Ludwigsburg.