Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners máttu þola svekkjandi tap í kvöld fyrir Brose Bamberg í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 76-86, eftir að hafa leitt með 16 stigum í hálfleik. Skyliners eftir leikinn í 9. sæti deildarinnar með sjö sigra og tíu töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 26 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel tíu stigum, fjórum fráköstum og stolnum bolta. Næsti leikur Skyliners er komandi föstudag 12. febrúar gegn sterku liði Bayern Munchen.