Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners máttu þola tap í kvöld fyrir Bonn í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 85-73. Skyliners eru eftir leikinn í 13. sæti deildarinnar með 11 sigra og 19 töp það sem af er tímabili.
Á 25 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 3 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum. Næsti leikur Skyliners er þann 2. maí gegn Oldenburg.