Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners máttu þola tap í kvöld fyrir liði Ulm í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 80-76. Eftir leikinn eru Skyliners í 8. sæti deildarinnar, með sex sigra og níu töp það sem af er tímabili.
Á um 29 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 14 stigum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta. Næsti leikur Skyliners í deildinni er komandi laugardag 6. febrúar gegn Rasta Vechta.