Jón Axel Guðmundsson og San Pablo Burgos lögðu Cratagena í Primera FEB deildinni á Spáni í dag, 73-83.
Á tæpum 20 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 12 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Sem áður eru Jón Axel og félagar í efsta sæti deildarinnar með 23 sigra, en fyrir neðan þá eru Estudiantes með einum sigurleik minna.