Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante lögðu Clavijo í dag í Leb Oro deildinni á Spáni, 69-86.
Jón Axel lék rúmar 16 mínútur í leiknum og skilaði á þeim tveimur fráköstum og þremur stoðsendingum.
Eftir leikinn eru Alicante í 7. sæti deildarinnar með 13 sigra og 7 töp það sem af er tímabili, en næst mæta þeir Melilla þann 16. febrúar.