Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante lögðu Estudiantes í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 75-65.
Á tæpum 25 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 13 stigum, 3 fráköstum, 6 stoðsendingum og stolnum bolta.
Sigurinn í kvöld var nokkuð stór fyrir Alicante, en Estudiantes eru í öðru sæti deildarinnar. Eftir leikinn er Alicante nú einum sigurleik fyrir neðan þá í 3. sætinu og tveimur sigrum fyrir neðan Leyma Coruna sem eru í efsta sætinu.