Jón Axel Guðmundsson og Fraport Skyliners unnu í dag Crailsheim Merlins í úrvalsdeildinni í Þýskalandi, 92-84. Eftir leikinn eru Skyliners í 10. sæti deildarinnar með ellefu sigra og 16 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 30 mínútum spiluðum skilaði Jón Axel 22 stigum, 3 fráköstum, 5 stoðsendingum og stolnum bolta, en hann var framlagshæsti leikmaður liðsins í leiknum.
Næsti leikur Skyliners er gegn toppliði Ludwigsburg þann 11. apríl.