Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante lögðu Ourense í Leb Oro deildinni á Spáni, 91-82.
Jón lék rúmar 29 mínútur í leiknum og skilaði á þeim fjórum stigum, fjórum fráköstum og níu stoðsendingum.
Eftir leikinn er Alicante í 7.-8. sæti deildarinnar með 18 sigra og 11 töp líkt og Valladolid.