Bakverðirnir Kamilla Sól Viktorsdóttir og Jón Arnór Sverrisson hafa samið við Njarðvík til tveggja ára. Jón Arnór hefur farið vel af stað á tímabilinu í Dominos deild karla, skilað 11 stigum, 4 fráköstum og 5 stoðsendingum að meðaltali í leik. Kamilla er nýverið komin aftur til félagsins, sem leikur í fyrstu deild kvenna, frá Dominos deildar liði Keflavíkur. Síðast lék Kamilla með Njarðvík í fyrstu deildinni tímabilið 2018-19, þá skilaði hún 18 stigum, 5 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.
Fréttatilkynning:
Bakverðirnir Jón Arnór Sverrisson og Kamilla Sól Viktorsdóttir hafa bæði undirritað nýja tveggja ára samninga við Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur.
Kamilla Sól kom nýverið í grænt frá Keflavík en hún lék með Njarðvík tímabilið 2018-2019 en hefur síðan þá verið á mála hjá Keflavík. Kamilla er sterkur bakvörður sem mun færa Njarðvíkurliðinu aukin gæði og liðsinna hópnum við að berjast fyrir sæti í Domino´s-deild kvenna á nýjan leik.
Jón Arnór Sverrisson hefur farið mikinn á tímabilinu til þessa í Domino´s-deild karla með 10,6 stig, 4,4 fráköst og 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þá er hann þriðji hæstur á lista yfir stolna bolta að meðaltali í leik með 2,29 per leik.
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur fagnar því að þessir ungu og öflugu leikmenn hafi fest ráð sitt í félaginu næstu tvö árin.