5:53
{mosimage}
Deildarmeistarar á Ítalíu Montepaschi Siena náðu að hefna ósigursins gegn Jóni Arnóri og félögum í Lottomatica Roma þegar að liðin mættust fyrr í kvöld, lokatökur 76-84, staðan í hálfleik var 36-38 Montepaschi Siena í vil. Jón Arnór skoraði 6 stig.
Afleit byrjun heimamanna í Róm var liðinu að falli í undanúrslitaviðureigninni gegn Montepaschi Siena, staðan eftir fyrsta leikhluta var 10-21 þar sem að gestirnir náðu að komast í 0-12. Heimamenn í Róma skoruðu sín fyrstu stig á fimmtu mínútu þegar að David Hawkins braut ísinn. En heimamenn sýndu styrk sinn og náðu að minnka muninn í tvö stig í hálfleik 36-38.
Góður kafli hjá Jóni Arnóri og Bojan Bodiroga komu Roma yfir 45-41, en eftir það var heimamönnum fyrirmunað að skora. Montepaschi Siena gengu á lagið og náðu sjö stiga forystu eftir þriðja leikhluta 54-61.
Spennan var mikil í fjórða leikhluta þar sem að Bojan Bodiroga náði í tvígang að minnka muninn í fjögur stig. 60-64 og svo 71-75. Deildarmeistararnir voru sterkir og léku mjög vel. Þeir náðu að landa mikilvægum sigri 76-84 eftir hörkuleik og eru því bæði lið á byrjunarreit, en þrjá leiki þarf til að komast í úrslitaleikina á Ítalíu.
Jón Arnór Stefánsson skoraði 6 stig, hann nýtti bæði tveggjastiga skotin sín, geigaði á öllum þremur þriggjastigaskotunum sínum. Jón fékk tvö víti sem hann setti niður.
Mynd: www.virtusroma.it