{mosimage}
(Jón Arnór í leik með sínum gömlu félögum í Carpisa Napoli)
Íslenska landsliðið burstaði Norðmenn í æfingaleik í Dublin á Írlandi 79-53 þar sem Jón Arnór Stefánsson gerði 28 stig. Leikurinn var í höndum Íslands frá upphafi til enda. Næsti leikur er gegn Írum á morgun kl. 19:00 íslenskum tíma.
Staðan að loknum 1. leikhluta gegn Norðmönnum í dag var 30-5 Íslendingum í vil og eftirleikurinn því næsta auðveldur.
Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur með 28 stig
Brenton Birmingham 14 stig
Hlynur Bæringsson 10 stig
Friðrik Erlendur Stefánsson 8 stig
Logi Gunnarsson 8 stig