Jón Arnór Stefánsson lenti á Manises flugvelli í Valencia í dag og þar mættu honum spænskir blaðamenn. Í frétt á vefsíðu Valencia segir að Jóni sé heiður að fá að koma aftur til félagsins sem hann lék síðast með 2007.
"Hlutverk mitt hér verður svipað og hjá Malaga. Spila af mikilli orku og þá sérstaklega í vörn en einnig sókn," sagði Jón við blaðamenn á flugvellinum. "Ég er 33 ára og hef mjög mikla reynslu af Evrópuboltanum einnig á Spáni. Ég get hjálpað þessu liði mikið, innan vallar sem og utan."