spot_img
HomeFréttirJón Arnór enn meiddur

Jón Arnór enn meiddur

Íslenska landsliðið mætir Belgíu klukkan 18:00 í kvöld í undankeppni Eurobasket 2017. Liðið tók síðustu æfingu fyrir leik í morgun í Lottó höllinni þar sem leikurinn fer fram.

 

Jón Arnór Stefánsson tók þátt í upphitun og byrjun æfingar með landsliðinu í morgun en læknir og sjúkraþjálfari liðsins mátu það þannig að hann gæti ekki leikið þennan leik.

 

Hnémeiðsli Jóns eru enn að angra hann og sá hann sér ekki fært að spila eftir ráðleggingar þjálfara og starfsmanna liðsins. Hann hvílir því í dag en áfram verður fylgst með honum á næstu dögum.

 

 

Ísland mætir Belgíu kl 18:00 að íslenskum tíma í Lottó höllinni í Antwerpen. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV 2.

 

Sjá má tólf manna hópinn sem mætir Belgíu hér inná.

Fréttir
- Auglýsing -