19:53
{mosimage}
Jón Arnór Stefánsson hóf leiktíðina í dag í ítölsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik en hann átti stóran þátt í 84-79-sigri Lottomatica Roma gegn Cimberio Varese.
Gestirnir höfðu frumkvæðið mestallan leikinn en Roma seig á þegar á leið og hafði sigur eftir framlengingu.
Jón Arnór lék allar 40 mínúturnar í leiknum, skoraði 10 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.
www.mbl.is / [email protected]
Mynd: www.virtusroma.it