Líkt og síðustu ár mun Karfan senda út veglega jólakveðju á milli jóla og nýárs til allra aðdáenda íslensks körfuknattleiks. Þessa dagana er unnið að því að safna kveðjunum saman og langar Körfunni að hafa þína með.
Bæði má hún vera eitthvað pæld, eða bara einföld skilaboð tekin upp á myndband, sem síðan sendast til okkar.
Hægt að senda myndbandið/kveðjuna á [email protected] með hjálp WeTransfer hér
Best væri að fá þær sem fyrst, en fínt er að miða við að síðasti dagur skila sé á miðnætti 23. desember
Vefjist það eitthvað fyrir fólki, þá er hægt að leita ráða hvernig myndbandinu megi koma til skila með því að senda okkur línu á [email protected] eða á Facebook Körfunnar.
Kveðjan frá því í fyrra: