Karfan.is óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með þökk fyrir liðnar stundir og sjáumst kát á parketinu.
Hér fer svo jólakveðjan okkar 2012. Þetta er þriðja árið í röð sem við höfum þennan háttinn á og ljóst að margir leggja talsverðan metnað í kveðjuna sína sem er vel. Viðtökur á kveðjunum hafa verið ljómandi góðar og því óhætt að slá því föstu að jólakveðja Karfan.is sé komin til að vera!