Grindavíkingar hafa staðfest að samningur við Jóhann Þór Ólafsson þjálfara liðsins verður virtur og mun hann því koma til með að þjálfa liðið áfram á komandi tímabili. Grindvíkingar gengu í gegnum nokkuð erfitt tímabil þar sem liðið varð fyrir þó nokkrum skakkaföllum sem endaði svo í DHL-höllinni þar sem þeim var sópað í fríið. Óvitað er hvort Björn Steinar Brynjólfsson haldi áfram sem aðstoðarþjálfari en það er í höndum Jóhanns þjálfara að ákveða það.